Nú er mér nóg boðið
Jæja, RETHARÐAR ég er búinn að marg tyggja á því að ég vilji fá einhver comment, þá er ég ekki að meina bara eitt comment og svo ekki sögunar meir.... En ef þið viljið vera svona ómerkileg að einfaldlega ekki hlýða þá geti þið étið skít fyrir mér !!!!! Nei, nei maður má ekki vera svona hranalegur því núna fer að koma sumar og þá verður gaman... síðustu sumur hafa verið eins leiðileg og vindurinn nema Hróarskelda í fyrra það var meira svona eins og að vera sofandi í eina viku heldur en gaman samt..... Ég er með master plön fyrir sumarið og ætla ég loksins að gerast veiðimaður for real, maður er ekkert búinn að vera að nenna þessu síðustu misseri vegna þess að þetta er ekkert spes en nú verður heldur betur gerð bragabót á því... Fyrsta veiðin er væntanlega Sogið með strákunum og þá verður mikið drukkið og minna veitt... Og Hróarskelda djöfull er maður orðinn spenntur fyrir henni og hef ég nánast tekið ákvörðun um það að fara á hana næsta sumar , því þar verða ekki ómerkari menn en Axl Rose og Bob Dylan svo hljóta Red Hot Chilli Peppers að sjá aðsér og mætta til að trylla líðinn.... Og einnig verð ég að skjóta því að, að ég var edrú alla helgina og svona líka hress alla þá morgna sem ég vaknaði... þetta er einhvað sem verður erfitt að venjast en maður verður bara að láta sig hafa það að geta ekki verið þunnur með skít uppá hnakka allar helgar grenjandi yfir hausverk og í aumingjaskap ...... En fjandinn hafi það ef það er einhvað skemmtilegt að gerast þá er ég game í fyllerí endilega bara láta mig vita...... Svo er ég að fara að setja inn ljóða link en þess má geta að öll þau ljóð sem fara þangað hafa verið samin af mér á klósettinu í vinnuni nema að annað sé tekið fram...... Bless í bili Örn kastar kveðju á líðinn !!!!



<< Home