Friday, February 24, 2006

Free Guestbook from Bravenet.com Free Guestbook from Bravenet.com

þá er að maður mættur á nýjan leik...

Sælt veri fólkið núna er maður mættur fyrir framan tölvuna og tilbúinn að dúndra inn einni bloggfærslu eða svo ... og svo væri líka gaman að fá comment þá veit maður að það lesi þetta einhver ég ætla rétt að vona að þessir 1000 manns sem hafa litið á síðuna sé ekki bara ég 1000 sinnum veit þó að addarinn er búinn að kíkja á hana nokkrum sinnum því hann kann sig og commentar grimmt.... en snúum okkur að öðru ég var að enda við að horfa á íshokkí í sjónvarpinu og það var bara ágætis afþreying ... en damn son hvað ég missti kúlið um daginn þegar ég var að keyra á kirkjuvelli í hafnarfyrði þá heyri ég flautað einhverstaðar fyrir aftan mig sé engan og er ekkert að pæla í þessu svo ég keyri bara áfram borandi í nefið (sem var fullt af múrdrullu) lít svo til hliðar og þar er Habbý og píparinn bara chillin hlæjandi að mér svo til að bjarga andlitinu þá pinnaði ég almeruna alveg á yfirsnúning til að losna frá frekari skömm.... en ég sá það alveg að Habbý rann alveg til í sætinu þegar hún sá mig bora í nefið þarna :)
En einig er það að frétta að maður er víst kominn á leikmanna skrá Jörfans fyrir Carlsberg Cup næsta sumar og er stjórnarformaður félagsins V.Ö.R að fara til NY í næstu viku og ætlar hann að kaupa tékka-skó fyrir kjellinn og þá verður víst ekki aftur snúið... en mér líst bara þokkalega á þetta lið sem við teflum fram þarna eru útúr streraði og útbrunnir fjölnismenn í meirihluta sem þóttu nú bara hinir prýðilegustu knatspyrnu menn þegar fjölnir var lítið annað en grasrótarfélag..... já og að ógleymdum vetrarólimpíuleikunum þetta er algert trash sjónvarpsefni það var bein útsending um daginn af einhverri skíðagöngu sem tók létt yfir klukkutíma þá er stillimyndinn töluvert skárra efni ...Word... en núna er að detta inn helgi og þá verður ekkert gert þar sem að masterinn er næstu helgi það verður einhvað svaðalegt það er allavega búið að fjárfesta í kút og svo er húsnæðið fyrir ofan barinn svo ég segi aha ég er til fjandans masterinn.... svo var ég að gera merka uppgvötun menn segja alltaf uss maður er nú bara ungur einusinni.... núna get ég bráðum farið að segja juss maður er nú bara gamall einu sinni.... það leisir svo mörg vandamál...... núna er ég að pæla í að fara að julla inn færslum með reglulegra millibili..... en enough for now ...word...